Fyrirtæki hafa kost á ýmsum útfærslum á samningsleiðum fyrir Microsoft leyfi. Sú útfærsla sem hefur notið hvað mestra vinsælda er sk. Open Value Subscription (OVS) samningur.
Þetta er samningur til þriggja ára þar sem hugbúnaðurinn er leigður eftir þörfum. Samningurinn miðast við að greitt sé fyrir ákveðinn grunnpakka (t.d. Windows, Office og tengileyfi við netþjóna) fyrir allar útstöðvar fyrirtækisins og síðan fyrir netþjóna leyfi. Upphæð samnings ræðst af fjölda útstöðva auk netþjónaleyfa við upphaf samningsins og sem síðan uppfærist m.v. árlega talningu.
Helstu kostir Microsoft OVS samnings:
-
Sveigjanleiki- Árgreiðsla samnings tekur mið af fjölda útstöðva og netþjóna við árlega talningu, þ.e. samningur getur bæði hækkað og lækkað á 3ja ára samningstímabilinu.
-
Uppfærsluréttur (e. Software assurance) er innfalin í samning. Gefur rétt til þess að nota ávalt nýjustu útgáfur hugbúnaðarins.
-
Niðurfærsluréttur(e. Downgrade). Nýr vélbúnaður er ávalt seldur með nýjustu útgáfu stýrikerfis hverju sinni. Fyrirtæki hafa kost á því að færa stýrikerfi niður í þá útgáfu stýrikerfisins sem almennt er í notkun í fyrirtækinu. Þar með er hægt að tryggja einsleitt umhverfi þar til allar vélar hafa verið uppfærðar í nýjustu útgáfu stýrikerfisins.
-
Heimaleyfi fyrir starfsmenn– Starfsmenn fyrirtækisins hafa rétt á sk. heimanotkunarleyfum af Office. Sótt er um heimaleyfi fyrir starfsmenn á leyfissíðu viðkomandi fyrirtækis, en ekki er krafist greiðslu fyrir leyfin fyrir utan sendingarkostnað á diskasettum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna með því að smella hér.
-
Námskeið– Ef fyrirtæki eru með 50, eða fleiri útstöðvaleyfi, fá þau rétt til að senda starfsmenn á sértæk námskeið fyrir Microsoft lausnir. Þar geta starfsmenn öðlast viðurkenndar vottanir á sviði lausna frá Microsoft.
-
Microsoft eLearning– Hér er um að ræða námskeið á netinu fyrir hinn almenna starfsmann. Hér er m.a. um að ræða námskeið á einstakar vörur innan Office vöndulsins. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna með því að smella hér.
Að auki fylgir fjöldi annarra fríðinda því að vera með OVS samning.







