Kerfisleiga Þekkingar er hagkvæm aðferð fyrir fyrirtæki til að koma sér upp öflugum upplýsingakerfum þar sem rekstraröryggi og fyrsta flokks þjónusta er höfð að leiðarljósi. Hug- og vélbúnaður er í eigu Þekkingar og í stað þess að festa kaup á dýrum búnaði, velja viðskiptavinir þær lausnir sem þeim henta best og greiða fast mánaðargjald fyrir. Viðskiptavinir geta fengið aðgang að viðskiptakerfum, hópvinnukerfum og vefjum í gegnum Internetið eða eftir almennum gagnasamböndum.
Innifalið í kerfisleigu er hýsing, rekstur, uppfærslur og öll dagleg umsjón gagna, en það þýðir meðal annars að viðskiptavinurinn hefur ávallt aðgang að nýjustu útgáfum þess búnaðar sem hann kýs að nota. Þannig geta fyrirtæki í kerfisleigu nýtt sér upplýsingatæknina til að skapa sér mikilvægt samkeppnisforskot.








