Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Minni pappírsnotkun með Pcounter Pcounter er heildar prentstýringarlausn. Lausnin stýrir prentun innan fyrirtækja og stofnana, dregur úr óþarfa prentun,

Pcounter

Minni pappírsnotkun með Pcounter

Pcounter er heildar prentstýringarlausn. Lausnin stýrir prentun innan fyrirtækja og stofnana, dregur úr óþarfa prentun, eykur öryggi auk þess að bjóða upp á möguleika á prentkvóta og kaupum á prentinneign. Lausnin nýtist öllum þeim sem vilja draga úr prentun eða ná betri stjórn og yfirsýn yfir prentkostnað fyrirtækis eða stofnunar. Pcounter er ekki háð einstökum stýrikerfum og getur stýrt prentverkum frá bæði PC, Mac og Unix vélum.

Möguleikar

Pcounter lausnin telur prentaðar síður fyrir prentara frá öllum helstu framleiðendum. Fyrirtæki geta fylgst með prentun einstakra notenda, prentara, deilda osfrv. Pcounter lausnin nær einnig til fjölnotatækja og „plottera“ og nýtist því sem heilstæð lausn til að ná utan um prentkostnað fyrirtækisins.

  • Aðgreindur kostnaður fyrir litaprentun og tvíhliðaprentun 
  • Möguleiki á kvóta fyrir notendur
  • Notendur geta séð stöðu sína í gegnum vefinn
  • Heldur skrá á miðlægum stað fyrir alla prentun, óháð því þó prentara séu á mismunandi þjónum
  • Hægt er að hafa mismunandi kostnaðartölur fyrir mismunandi pappírsstærðir, prentara osfrv.
  • Fullkomin skýrslugjöf í HTML, XLS og CSV
  • Fjöldi annarra möguleika, s.s. aðgangsstýring á prenttækjum, netverslun með prentkvóta ofl.

Umhverfisvernd, öryggi og sparnaður í einni lausn

Reynslan sýnir að uppsetning á Pcounter lausninni dregur verulega úr óþarfri prentun. Starfsmenn verða meðvitaðri um prentunina og því draga fyrirtæki úr kostnaði um leið og þau stuðla að umhverfisvernd.

Fjöldi fyrirtækja nýtir sér Pcounter lausnina í dag, ekki einungis af ofangreindum ástæðum heldur einnig öryggisins vegna. Með því að setja upp prentstýringarlausn eins og Pcounter geta fyrirtæki aukið öryggi sitt umtalsvert. Hægt er að setja lausnina upp á þann hátt að notendur þurfi að slá inn kóða á jaðarbúnað þannig að prentaðar síður skili sér. Kemur það í veg fyrir að trúnaðargögn liggi ósótt í prenturum og lendi í höndum rangra aðila.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf