Þekking býður ýmsar tegundir vefhýsingar sem henta eiga flestum fyrirtækju, stofnunum og einstaklingum. Fyrir þá sem vilja einfaldan og ódýran þjónustumöguleika hentar vefhótelið best en öðrum hentar hin almenna vefhýsingarþjónusta betur. Fyrir þá sem þurfa síðan flóknari hýsingu, t.d. leigu á eigin vél er útbúið sérstakt tilboð. Hér að neðan eru upplýsingar um hýsingarmöguleika og verð.
Vefhótel Þekkingar: þjónusta frá kr. 1.250 á mánuði
Vefhótel Þekkingar hentar þeim sem vilja í einum pakka fá aðgang að fjölda vefumsjónarkerfa, sínum eigin tölvupósti og hafa fulla stjórn á umsjónarkerfi vefhýsingar. Uppsetning og umsýsla með hýsingarkerfinu er afar einföld og notkunarmöguleikarnir fjölbreyttir.
Með vefhóteli Þekkingar fæst aðgangur að fjölda ókeypis kerfa, s.s. Joomla, Wordpress, ofl. Notendur geta sett upp ótakmarkaðan fjölda undirléna (subdomains), netfanga og hafa fullkomna stjórn á sínu svæði. Með lágmarks tilkostnaði er því hægt að setja upp öflugt umhverfi með fyrsta flokks vefumsjónarkerfi. Til viðbótar við þetta fylgir ótakmarkaður fjöldi MySQL gagnagrunna, PHP5 stuðningur, FTP þjónusta ofl. Uppsetning þeirra forrita sem fylgja með vefhótelinu er afar einföld og getur notandi sett upp kerfin með örfáum smellum.
Önnur vefhýsing
Fyrir þá sem hafa þarfir sem ekki eru uppfylltar af vefhóteli Þekkingar hentar hin almenna vefhýsing Þekkingar. Dæmi um slík vefsvæði eru vefir sem þurfa Microsoft SQL gagnagrunn, ASP.net stuðning osfrv. Slík vefhýsing er með öðrum hætti en vefhótelið og hafa notendur þá ekki aðgengi að vefumsjónarkerfunum, stofnun undirléna osfrv. Þekking getur í þessu fyrirkomulagi nánast boðið hýsingu á hvaða kerfi sem um ræðir og breytir þá engu hvort um er að ræða vefi í Windows eða Linux umhverfi.
Verð m. vsk.:
| Vefhótel 1 | Vefhótel 2 | Vefhótel 3 | Vefur | Vefur m/SQL | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hýsing á léni | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| Ótakmarkaður fjöldi undirléna | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| FTP aðgangur | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| MySQL grunnur | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| Microsoft SQL grunnur | ![]() |
||||
| Microsoft IIS vefur | ![]() |
![]() |
|||
| Stjórnborð | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| Aðgengi að vefpósti | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| Víruspóstsía / Ruslpóstssíun | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| POP3 / IMAP | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| CGI / PEARL | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| PHP5 | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| ASP.NET | ![]() |
![]() |
|||
| Gagnapláss og afritun | 500 MB | 1 GB | 2 GB | 1 GB | 1 GB |
| Ótakmarkaður fjöldi netfanga | ![]() |
![]() |
![]() |
||
| 1.250 kr. | 2.500 kr. | 3.750 kr. | 3.950 kr. | 7.500 kr. |








