Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking býður uppá afritun í gegnum einn öflugasta afritunarhugbúnað á markaðnum, Tivoli Storage Management (TSM). Þessi hugbúnaður er framleiddur af

Afritun

Þekking býður uppá afritun í gegnum einn öflugasta afritunarhugbúnað á markaðnum, Tivoli Storage Management (TSM). Þessi hugbúnaður er framleiddur af fyrirtækinu Tivoli Systems Incorporated og er það í eigu IBM. Hugbúnaðurinn er almennt talin sá fullkomnasti meðal afritunartækja og er vinsæll í notkun hjá fyrirtækjum sem þurfa stærri afritunarlausnir.

Fullkomin lausn

TSM er afar fullkomin lausn til afritunartöku. Afritun hjá Þekkingu byggir á svokallaðri síhlutafritun (e. Progressive Incremental Backup), en hún felst í því að aðeins er tekið afrit af þeim gögnum sem hafa breyst frá því síðasta afrit var tekið og aldrei þarf að taka heildarafrit af búnaði nema í upphafi afritunarferilsins. Þessi aðferð lágmarkar álag á búnað vegna flæðis gagna milli þjóna og nýtir betur pláss á geymslumiðlum þar sem sömu gögnin liggja ekki á mörgum miðlum á sama stað.  

Afritunarkerfið er virkt allan sólarhringinn og skiptir verkum upp í ákveðna röð. Meginþungi afritunar á gögnum af þjónum fer fram milli kl. 18:00 og 08:00 dag hvern. Utan þess tíma sinnir kerfið öðrum verkum, s.s. flutningi gagna af diskasvæðum yfir á spólur, speglun afritaðra gagna milli afritunarþjóna í Kópavogi og Akureyri, uppstokkun gagna á spólum, útþurrkun úreltra gagna og losun gagnarýmis.

Skilgreint afritunarferli

Það gilda staðlaðar verklagsreglur um afritunarferli Þekkingar. Ef viðskiptavinir óska eftir annars konar útfærslu er hægt að sérsníða afritunarreglur að þeirra þörfum t.d. þannig að geymslutími gagna og eintakafjöldi uppfylli kröfur þeirra. Þetta getur átt jafnt við einstök kerfi hjá viðkomandi fyrirtæki eða öll kerfi.

Eftirlit með afritun

Eftirlit með afritunartöku er innbyggt í TSM. TSM sendir afritunarskýrslur í tölvupósti til ábyrgðarmanna afritunarkerfa Þekkingar og kerfisstjóra viðkomandi fyrirtækja sem eru í afritun hjá Þekkingu.  Einnig er hægt að fylgjast með afritum á vefsíðu. Komi upp frávik við afritun þá fá kerfisstjórar og ábyrgðarmenn TSM tölvupóst og bregðast þeir við með því skoða villuskilaboð í kerfisskrám þannig að hægt sé að greina frávikið. Þekking býður einnig viðskiptavinum að fá tölvupóst og með því geta þeir fengið að sjá stöðu afritunar hjá sínu fyrirtæki. 

Allar nánari upplýsingar veitir söludeild Þekkingar, 460-3100 eða sala@thekking.is

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf