Þekking býður viðskiptavinum sínum upp á aðgang að þjónustuveri. Þjónustuverið annast alla símaþjónustu gagnvart viðskiptavinum. Auk þessa, ber þjónustuverið ábyrgð á móttöku og skráningu verkbeiðna og sér til þess að þeim sé forgangsraðað og komið í vinnslu hjá sérfræðingum Þekkingar.
Í þjónustuveri Þekkingar eru samankomnir starfsmenn með víðtæka þekkingu og reynslu á öllum upplýsingakerfum sem fyrirtækið þjónustar. Þar gildir einu hvort um sé að ræða viðskiptakerfi, verslunarlausnir, hópvinnukerfi, stýrikerfi, netmál eða microsoft forrit, svo fátt eitt sé talið.
Markmið þjónustuversins er að veita viðskiptavinum sem fjölbreyttasta þjónustu og að þeir fái á einum stað lausn á nánast öllum vandamálum sem upp kunna að koma í daglegum rekstri tölvukerfa þeirra.
Opnunartími:
- Mánudagur til föstudags: 08:00-19:00
- Laugardagar: 09:00-13:00.
Einnig er boðið upp á bakvaktaþjónustu fyrir þá viðskiptavini sem það kjósa. Bakvaktaþjónusta veitir viðskiptavinum aðgang að þjónustu Þekkingar utan opnunartíma fyrirtækisins.
Allar nánari upplýsingar um þjónustver Þekkingar er hægt að fá í síma 460-3100, eða sala@thekking.is.








