Tölvupóstur er orðinn ómissandi samskiptaháttur í flestum rekstri. Það er því mikilvægt í daglegum rekstri að fyrirtæki og stofnanir geti verið örugg um að tölvupóstur skili sér frá og til fyrirtækisins. Þekking hefur til fjölda ára boðið uppá góða og örugga tölvupóstþjónustu.
Tölvupóstþjónusta Þekkingar er fjölbreytt og fyrirtæki geta hæglega sniðið hana eftir sínum þörfum. Þetta á bæði við hvað varðar stærð pósthólfa, eiginleika póstkerfis, áframsendingar pósts, aðgengi í gegnum vefpóst ofl.
Viðskiptavinir tölvupóstþjónustu Þekkingar þurfa ekki að óttast um öryggi sitt þar sem allur tölvupóstur er vírusleitaður áður en hann berst til og frá notendum. Jafnframt því að bjóða vírusskönnun fer allur póstur einnig í gegnum öfluga ruslpóstssíu Þekkingar.








