Þekking hýsir lén og heimasíður fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana.
Internet á Íslandi hf., ISNIC, sér um skráningu léna undir þjóðarléninu .is, en öll lönd eiga sitt þjóðarlén sem endar á tveggja stafa auðkenni samkvæmt alþjóðlegum staðli. Auðkennið fyrir Ísland er "IS". Þekking aðstoðar viðskiptavini sína með umsóknir um skráningu léns til ISNIC.
Með því að leita til Þekkingar með vefhýsingu geta fyrirtæki treyst á öryggi og góðan upptíma heimsíðu sinnar.
Nánari upplýsingar má fá í síma 460-3100 eða með því að senda fyrirspurn á sala@thekking.is.








