Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking hefur í yfir 10 ár annast rekstur og viðhald á tölvubúnaði hjá fyrirtækjum og stofnunum. Í þjónustunni felst m.a. uppsetningar og viðhald á

Tölvubúnaður

Þekking hefur í yfir 10 ár annast rekstur og viðhald á tölvubúnaði hjá fyrirtækjum og stofnunum. Í þjónustunni felst m.a. uppsetningar og viðhald á netþjónum, útstöðvum og jaðartækjum.

Fyrirkomulag þjónustunnar er sniðið þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Meðal þjónustupakka sem Þekking er að bjóða er eftirfarandi:

  • Alrekstur - Þekking annast rekstur, eftirlit og viðhald alls tölvubúnaðar og netkerfa gegn föstu mánaðagjaldi. Slíkir samningar eru sniðnir að umfangi og þörfum viðskiptavina. Slíkir samningar geta t.d. innifalið hýsingu á miðlægum kerfum og búnaði, aðgengi að þjónustuveri, viðveru tæknimanna ofl. Athuga ekki er skilyrði að miðlæg kerfi séu hýst hjá Þekkingu en sérfræðingar Þekkingar annast einnig rekstur og eftirlit með kerfisrýmum sem staðsett hjá viðskiptavinum.
  • Viðvera -  Samið er um að tæknimaður frá Þekkingu sé staðsettur hjá viðskiptavinum á fyrirfram ákveðnum dögum í hverri viku eða mánuði. Greitt er fast mánaðarlegt gjald í samræmi við umfang viðverunnar
  • Útkallsþjónusta - Viðskiptavinur hefur einfaldlega samband þega hann þarf á þjónustu að halda. Þetta fyrirkomulag hentar t.d. fyrir smærri fyrirtækjum þar sem ekki er þörf á vikulegri þjónustu við tölvubúnað.

Jafnframt þessu veita sérfræðingar Þekkingar tölvudeildum viðskiptavina sinna magvíslegan stuðning í sértækum verkefnum, t.d. hvað varðar innleiðingar og uppfærslur á póst og hópvinnukerfum, net- og öryggismál ofl. 

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf