Þekking hefur frá stofnun fyrirtækisins annast rekstur og þjónustu verslunarkerfa. Fyrirtæki í verslunarrekstri gera miklar kröfur til uppitíma afgreiðslukerfa enda markast þjónustustig þeirra m.a. af því hversu hratt og vel er hægt að afgreiða viðskiptavini.
Þekking veitir víðtæka þjónustu í verslunarkerfum fyrir margar stórar matvöru- og lyfjakeðjur á Íslandi. Þjónustan nær til allra landshluta þar sem viðskiptavinir Þekkingar eru með dreifða starfsemi vítt og breitt um landið. Alls starfa um 8 þrautreyndir sérfræðingar á sviði verslunarkerfa hjá Þekkingu.
Þjónusta Þekkingar á svið verslunarkerfa felst m.a. í:
- Viðhald á afgreiðslukössum, jaðarbúnaði og bakvinnslu
- Uppsetningar á afgreiðslubúnaði, bæði vélbúnaði og hugbúnaði
- Þjónustuver sem tekur á móti og leysir þjónustubeiðnir frá notendum í verslunum
- Eftirlit með gagnasamböndum
- Ráðgjöf og innkaup á vélbúnaði
- 24/7 þjónusta og bakvakt







