Umgengni um tölvupóst
Tölvupósturinn er orðinn eitt mikilvægast verkfærið sem starfsmenn fyrirtækja nota við dagleg störf. Þeim mun mikilvægara er að tölvupóstinn sé notaður á skilvirkan máta bæði hvað varðar geymslu á tölvupóstum og úrvinnslu þeirra.
Lýsing á námskeiði
Þekking bíður fyrirtækjum uppá 2ja tíma leiðsögn á því hvernig starfsmenn geta náð betri tökum á pósthólfinu sínu og um leið aukið framleiðni sína við dagleg störf.
Farið er yfir nokkur lykilatriði eins og:
- Hvernig getum við fækkað póstum í inboxi
- Hvenær er tölvupóstur rétti miðillinn
- Hvernig er best að setja saman skilboð
- Hvernig getum við komið í veg fyrir ofnotkun á tölvupósti
- Hvaða málefni eiga að fara fram í gegnum tölvupóst og hver ekki
- Dagleg umgengi og notkun á tölvupósti
- O.fl
Verð: 49.900,- kr fyrir hópa.
Fyrirkomulag: Ráðgjafi frá Þekkingu mætir á viðkomandi vinnustað og flytur námskeiðið. Miðað er við að námskeið taki 2 tíma. Engin takmörkun er á fjölda á meðan pláss leyfir. Gögn frá námskeiði verða gerð aðgengileg fyrir þáttakendur ásamt ábendingum um gögn sem má finna á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir sölusvið Þekkingar, 460-3100 eða sala@thekking.is







