Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

VAM (Visual Asset Management) og er öflugt tól sem einfaldar utanumhald um eignir fyrirtækja  og stofnana. Lausnin er rekin í kerfisleigu

VAM eignaskráning

VAM (Visual Asset Management) og er öflugt tól sem einfaldar utanumhald um eignir fyrirtækja  og stofnana. Lausnin er rekin í kerfisleigu umhverfi Þekkingar sem þýðir að notendur þurfa ekki að greiða stofnkostnað í vélbúnaði, eða hugbúnaði, heldur einungis mánaðarlegt gjald sem tekur mið af umfangi notkunar. 

Lausnin

Um að ræða lausn sem tvímælalaust getur einfaldað eignaskráningu fyrirtækja og stofnana og um leið gert skráninguna skilvirkari. Krafan um skráningu á eignum er sífellt að aukast, en hluthafar og stjórnendur gera þá kröfu að vel sé haldið utan um þær eignir sem tilheyra starfseminni. Ýmsum aðferðum hefur verið beitt við skráningu eigna og er alls ekki óalgengt að haldið sé utan um skráninguna í Excel skjölum.

VAM er sérhönnuð lausn til eignaskráningar sem býður einfalda skráningu gagna með notkun handtölva og strikamerkja eða innslætti í gegnum vefviðmót. Möguleikar lausnarinnar eru fjölbreyttir og má þar nefna innlestur úr öðrum kerfum, útleigukerfi, öfluga skýrslugjöf, myndræna framsetningu á uppbyggingu vinnusvæða ofl. 

Hverjir hafa not fyrir VAM?

Lausnin hentar í raun öllum þeim sem hafa áhuga á að ná betur yfir virði og staðsetningu eigna sinna, jafnt stórum sem smáum fyrirtækjum og stofnunum. Þar sem boðið er upp á lausnina í kerfisveitu er kostnaður mun lægri fyrir viðskiptavini en ef lausnin væri uppsett hjá þeim sjálfum. Þekking getur veitt fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf varðandi hentugustu leiðina til uppsetningar og einnig komið að innleiðingu verkferla í tengslum við eignaskráningu.

Nánari upplýsingar veitir sölusvið Þekkingar, sala@thekking.is

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf