Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Veeam  er afritunarlausn sem er sniðin að afritun á sýndarnetþjónum, bæði fyrir VMware og Hyper-V umhverfi. Með hugbúnaði frá Veeam geta

Veeam

Veeam  er afritunarlausn sem er sniðin að afritun á sýndarnetþjónum, bæði fyrir VMware og Hyper-V umhverfi. Með hugbúnaði frá Veeam geta viðskiptavinir dregið úr kostnaði, áhættu og notið þeirrar hagræðingar að fullu sem fæst með því að keyra sýndarumhverfi. Viðskiptavinir Veeam eru nú yfir 60.000 um allan heim og bætast að meðaltali 600 nýir við í hverjum mánuði. Svo dæmi sé tekið er FastSCP ™ tólið notað af meira en 120.000 VMware sérfræðingum sem gerir það að því tóli sem mest er notað í heiminum í dag til aðstoðar við stjórnun VMware kerfa.

Yfirlit

Veeam Software, Inc. býður upp á fjölda lausna til reksturs á VMware ESX “virtual” umhverfum. Meðal lausna eru t.d. Veeam Backup & Replication, afritun og fjölföldunarkerfi; Veeam Reporter og Veeam Reporter Enterprise, skýrslutól til að fylgjast sjálfvirkt með og skrá upplýsingar um “virtual” umhverfi; Veeam Monitor; eftirlit og bilanagreining; Veeam One; ein heildarlausn til utanumhalds og reksturs á VMware ESX kerfum. 

Að auki eru vörur eins og FastSCP, sem er notað til að flytja gögn/skrár á milli kerfa og Veeam RootAccess Wizard, sem er til að stjórna rótaraðgangi inn á ESX þjóna og stofna venjulega notendur.

Árangur Veeam á sviði tækninýjunga má fyrst og fremst rekja til stefnu fyrirtækisins um nýsköpun, tæknilegrar sérþekkingar ásamt góðum tengslum við markaðinn, síendurteknum prófunum  og þróun á kerfum sem eru í boði.

Notendur

Meðal notenda á Íslandi má nefna aðila eins og:

  • Lýsi hf.
  • Creditinfo
  • Reykjavíkurborg
  • Samherji
  • Ikea á Íslandi
  • Veðurstofa Íslands
  • Vífilfell
  • Íbúðalánasjóður
  • Eimskip
  • Wow air
  • Húsasmiðjan
  • Akureyrarbær
  • Ofl.
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf