Þekking getur veitt viðskiptavinum sínum aðstoða varðandi hönnun og uppsetningu á vefsvæðum. Sérfræðingar Þekkingar þróa í dag lausnir bæði fyrir innri- og ytri vefi.
Vefumsjónarkerfi
Þekking þjónustar í dag ýmis mismunandi vefumsjónarkerfi. Þjónusta Þekkingar felst í ráðgjöf og þarfagreiningu varðandi uppsetningu og skipulag vefsvæðis. Sé þess óskað geta sérfræðingar Þekkingar einnig komið að uppsetningu, reksturs og innsetningu efnis á síðu viðskiptavinar. Á meðal þeirra vefumsjónarkerfa sem Þekking býður upp á eru:
- SharePoint
- Joomla
- Wordpress
- Drupal
- Ofl.
SharePoint
Þekking hefur mikla reynslu af uppsetningu og þróun SharePoint vefsvæða. SharePoint er heildarlausn sem býður fjölbreytta möguleika í efnisstjórnun, upplýsingagjöf, leit og verkefnavinnu. Kerfið er hannað með það í huga að ná fram aukningu á framleiðni innan fyrirtækja. Lausnin hentar sérlega vel fyrir fyrirtæki sem eru á fleiri en einum stað og fyrir utanumhald um skjöl, verkferla og vinnusvæði sem ganga þvert á deildir fyrirtækja. Einnig er lausnin einföld í umsýslu og því öflug og hagkvæm leið til að koma upp fyrsta flokks innraneti eða ytri vef fyrir stór og smá fyrirtæki.
Nánari upplýsingar um SharePoint er að finna hér til hliðar.
Frí vefumsjónarkerfi
Þekking hefur af því góða reynslu að setja upp og þjónusta svokölluð „Open Source“ vefumsjónarkerfi. Þekking getur tekið að sér uppsetningu á flestum tegundum fríkerfa og komið að aðstoð við rekstur þeirra sé þess óskað.
Á meðal þeirra kerfa sem reynst hafa hvað best er vefumsjónarkerfið Joomla, sem er margverðlaunað kerfi og notað út um allan heim. Nánari upplýsingar um Joomla kerfið er að finna hér til hliðar.








