Fyrirtæki hafa í auknum mæli verið að nýta sér slíkar miðlægar lausnir, hvort sem netþjónar eru í hýsingu utan fyrirtækis eða staðsettir innan þeirra. Þau vandamál og þær kvartanir notenda sem hafa verið hvað mest áberandi tengjast vinnsluhraða og notendaumhverfinu sem mörgum hefur þótt lítið aðlaðandi. Með því að notast við lausnir frá 2X sjá notendur fram á öruggari og hraðvirkari vinnslu, sem líkist meira því sem þekkist í hefðbundinni vinnslu frá útstöðvum.
Öflugar lausnir
Á meðal þeirra vara sem 2X hefur þróað er léttbiðlaraþjónn (e. Thin Client Server) fyrir bæði Windows og Linux sem eykur afköst í vinnslu umtalsvert og er þess utan fáanlegur á mjög góðu verði í samanburði við svipaðar lausnir. Þjónninn miðstýrir á skilvirkan átt léttbiðlurum og tengingum notenda. Ennfremur er fáanlegur 2X þjónn fyrir Terminal þjónustur sem gerir allar Windows þjónustur aðgengilegar á vélum notenda og lækkar umsýslu og þjónustu við kerfi. Einnig býður fyrirtækið 2X LoadBalancer fyrir Terminal netþjóna sem jafnar álag, eykur öryggi og uppitíma. Að lokum er svo fáanlegur 2X Virtual Desktop Server sem býður upp á uppsetningu á sýndarumhverfi fyrir útstöðvar í stað þess að setja upp stýrikerfin á útstöðvarnar sjálfar.
Um 2X
2X
er ört vaxandi og spennandi fyrirtæki með aðsetur í Þýskalandi,
Bretland, Bandaríkjunum, Kýpur og á Möltu. Á bak við fyrirtækið eru
starfsmenn með mikla reynslu af þróun og sölu hugbúnaðar. Fyrirtækið er
ennfremur í samstarfi við Microsoft, Novell ISV og IBM. Á meðal
viðskiptavina 2X má nefna fyrirtæki á borð við BMW (UK), ABN Amro
(Ástralía), Abbey National (UK), Toshiba (Kanada) ofl.








