Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking er viðurkenndur endursöluaðili Double-Take hugbúnaðarins á Íslandi og jafnframt hefur Þekking áunnið sér sérstaka vottun sem

Double Take

Þekking er viðurkenndur endursöluaðili Double-Take hugbúnaðarins á Íslandi og jafnframt hefur Þekking áunnið sér sérstaka vottun sem þjónustuaðili á Íslandi.

Bættur uppitími miðlægs búnaðar

Miðlæg kerfi eru sífellt að verða mikilvægari fyrir daglegan rekstur fyrirtækja, en Double-Take er  hugbúnaður sem heldur utan um öryggi miðlægra gagna og netþjóna. Lausnin tryggir að ef kerfi fara niður af einhverjum sökum þá þarf það ekki að trufla notendur þar sem við tekur afrit af viðkomandi kerfi með lágmörkuðum niðritíma og raski. Ef t.d. póstþjónn í fyrirtæki myndi hrynur, þá getur tekið að lágmarki heilan vinnudag að koma honum aftur í gagnið, og  algengt að yngsta afritið sem til er af gögnum sé frá því nóttinni áður. Í þessu tilviki tapast gögn sem urðu til yfir daginn sem atvikið á sér stað og einnig má segja starfsemi fyrirtækisins varðandi tölvupóstsamskipti sé lömuð í þann tíma sem tekur að endurheimta gögnin og setja upp að nýju póstkerfið sem varð fyrir tjóninu.

Síafritun og vöktun

Double- Take tryggir með síafritun og vöktun, að annað kerfi taki við, þannig að lítið sem ekkert rask verður á vinnu notenda. Sama gildir um þjóna sem geyma viðskiptakerfi eða annan mikilvægan hugbúnað þar sem uppitími er mikilvægur fyrir daglegan rekstur. Með þessu er hægt að tryggja og verja gögn og uppitíma kjarnalausna í rekstri þannig að notendur geti unnið vinnu sína nánast hnökralaust þó svo að áföll dynji á rekstri kerfanna.

Útbreidd lausn

Lausnin er orðin mjög útbreidd en í dag eru um 130.000 netþjónar varðir með Double-Take hugbúnaðinum. Lausnin brúar bilið á milli möguleika hefðbundinnar afritunarlausna og krafna um aðgengi og uppitíma forrita frá biðlurum. Með því að hafa ávalt til staðar sítengd afrit af gögnum á netþjóni, á öðrum vara-netþjóni, getur Double-Take minnkað eða komið alveg í veg fyrir gagnatap ásamt því að niðritími er einungis í sekúndum talinn.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf