Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking er með s.k. Gold Partner vottun frá Microsoft. Þessi vottun er einungis veitt til samstarfsaðila sem hafa sýnt framúrskarandi hæfni og

Þekking er með s.k. Gold Partner vottun frá Microsoft. Þessi vottun er einungis veitt til samstarfsaðila sem hafa sýnt framúrskarandi hæfni og þekkingu á sviði lausna frá Microsoft.

Þekking hefur því innan sinna raða reynslumikla sérfræðinga sem geta framkvæmt úttektir á Microsoft leyfismálum innan fyrirtækja og ráðgjöf varðandi þær leiðir sem henta hverju fyrirtæki.

Frí greining á þörfum

Fyrirtækjum bjóðast ýmsar leiðir í sambandi við notkun á Microsoft hugbúnaði og er ýmist hægt að kaupa eða leigja hugbúnaðinn. Leyfismál geta verið talsvert flókin og ekki er alltaf augljóst hvaða leið sé hagkvæmust. Sérfræðingar Þekkingar greina þarfir fyrirtækja og stofnana þeim að kostnaðarlausu og skila tillögum og tilboðum í hugbúnaðarleyfi.

Kynntu þér mismunandi leiðir í Microsoft notkun hér á síðunni og bókaðu fría kynningu  hjá ráðgjöfum Þekkingar. Slík kynning er án allra skuldbindinga og býðst öllum fyrirtækjum, hvort sem þau eru í rekstrarþjónustu Þekkingar eður ei.

Fáðu tilboð í Microsoft leyfi eða leyfissamning!

Hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum eru Microsoft hugbúnaðarleyfi töluverð fjárfesting. Fáðu tilboð frá Þekkingu í Microsoft leyfi eða leyfissamning og skoðaðu hvort við getum ekki hagrætt í leyfisinnkaupum. Sendu okkur fyrirspurn á sala@thekking.is eða hafðu samand í í síma 460-3100.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf