Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Starfsemi fyrirtækja er sífellt að verða dreifðari og algengt er að fyrirtæki reki fleiri en eina

SharePoint

Starfsemi fyrirtækja er sífellt að verða dreifðari og algengt er að fyrirtæki reki fleiri en eina starfstöð, innan- sem utanlands. Auk þessa eru starfsmenn oft mikið á ferðinni á milli starfstöðva og landa. Það er því mikilvægt að starfsmenn geti miðlað upplýsingum á einfaldan hátt og unnið saman án tillits til staðsetningar.

Microsoft SharePoint er hugbúnaður sem auðveldar samstarf og upplýsingamiðlun innan fyrirtækja. Lausnin er samþætt við aðrar lausnir frá Microsoft sem þýðir að hægt er að nálgast upplýsingar frá ólíkum kerfum á einum stað, þ.e. í gegnum Sharepoint.

Samvinna / hópvinna

  • Sharepoint snýst um samvinnu og er öflug samskiptagátt og þekkingarstjórnunarkerfi. Aðgangur er auðstýranlegur og hægt að gefa aðgang niður á möppur og skjöl með einföldum hætti. Auðveldlega er hægt að setja upp svæði fyrir vinnuhópa og einnig er innbyggt í Sharepoint samþætting við Office.  Með Sharepoint má tengja saman ýmiss konar upplýsingar, fólk og verkferla.
  • Hver og einn getur breytt sinni sýn á síðurnar eftir hentugleika á einfaldan og þægilegan hátt.

Gátt

  • SharePoint er upplýsingagátt þar sem hægt er að vista og vinna á miðlægu svæði.  Í boði eru svæði á borð við Innranet sem bjóða upp á möguleika á borð við hópvinnusvæði, blogg, viki, spjall, My Site ofl.
Leit
  • Gífurlega öflug leit er í SharePoint sem leitar m.a. í svæðum, síðum, möppum og jafnvel inni í skjölum.
Efnisstjórn skjala og mála 
  • SharePoint býður upp á einfalda stjórnun á skjölum og góða aðgangsstýringu.
  • Hægt er að setja upp einföld skjalasöfn og flokka skjöl eftir hentugleika.
  • Hægt er að setja upp verkferli á borð við samþykktarferla ofl.
  • Setja lýsigögn og efnisorð á skjöl til að auðvelda flokkun.
  • Fylgjast með breytingarsögu skjala (check in and check out).
  • Fylgjast með útgáfustýringu skjala (versioning) en með því er hægt að skoða eldri útgáfur skjala.
  • Búa til sniðmát af skjölum og margt fleira.
  • Allt aðgengi skjala er í Windows.
Eyðublöð 
  • Sharepoint býður upp á öfluga lausn fyrir eyðublöð. Bæði er hægt að setja upp eyðublöð í listum og með InfoPath.

Viðskiptagreind
  • Microsoft Office Excel® skjöl á miðlægum þjóni.
  • Skýrslusvæði (Report Center).
  • Birting í vefformi.
  • Mælikvarðar (KPIs/Dashboards).
  • Bætt ákvarðanataka.

Þjónustur í boði

Uppsetning
Þekking býður upp á uppsetningu á SharePoint Office Server, SharePointServices og SharePoint Portal Server. Uppsetning er sniðin að óskum hvers viðskiptavinar fyrir sig. Sá möguleiki er fyrir hendi að stigskipta uppsetningum til að minnka áreiti á starfsmenn. Þekking býður viðskiptavinum sínum upp á hýsingu og/eða  kerfisleigu á SharePoint Services og SharePoint Office Server

Ráðgjöf
Þekking býður viðskiptavinum sínum ráðgjöf með val á kerfum og er þá sérstaklega horft á þarfir fyrirtækisins. Ráðgjafar greina uppbyggingu fyrirtækisins og þarfir þess með því að taka viðtöl við starfsmenn og skoða núverandi uppbyggingu innra umhverfis. Ráðgjafar greina sérstaklega nauðsyn þess að hafa tengingu í önnur kerfi  til að komast hjá tvískráningu. Með það til hliðsjónar leggja ráðgjafar Þekkingar fram tillögur um uppsetningu og innleiðingu á SharePoint.    

Innleiðing
Ráðgjafar og forritarar Þekkingar innleiða SharePoint á þeim hraða sem hentar best hverjum viðskiptavini fyrir sig. Innleiðingin felst í því að setja upp SharePoint síður og stilla þær. Útbúa alla nauðsynlega lista og form sem þarf til þess að starfsmenn geti farið að vinna með SharePoint.  Í lok innleiðingar er boðið upp á námskeið eða persónulega kennslu til að aðstoða starfsmenn í að byrja að nota SharePoint.

Sérlausnir
Ráðgjafar og forritarar Þekkingar bjóða upp á ýmis konar sérsniðnar lausnir. M.a. má nefna innranet, skjalakerfi, bókasafn, handbækur (gæðahandbækur, rekstrarhandbækur, starfsmannahandbækur og öryggishandbækur). Einnig útbúa forritarar Þekkingar til ýmsa brunna með sérsniðnu sjónarhorni sem hentar hverjum og einum.

Önnur kerfi
Navision
Hægt er að sækja upplýsingar úr Navision hvort sem það eru  viðskiptamannaupplýsingar, skýrslur, reikningar ofl.
Microsoft Office
SharePoint tengist öllum Office forritunum
Microsoft Exchange
Tenging við tölvupóst og dagatal
Microsoft CRM
Sækja viðskiptamannaupplýsingar

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf