Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking býður upp á öfluga vefsíu í gegnum kerfisveitu fyrirtækisins. Um er að ræða geysiöflugt tól frá WebSense sem er leiðandi á sínu sviði í heiminum.

Netvörn

Þekking býður upp á öfluga vefsíu í gegnum kerfisveitu fyrirtækisins. Um er að ræða geysiöflugt tól frá WebSense sem er leiðandi á sínu sviði í heiminum. Með innleiðingu WebSense vefsíunnar geta fyrirtæki og stofnanir tryggt upplýsingaöryggi sitt með fyrirbyggjandi aðgerðum.

  • Lokaðu á óæskilegar síður
  • Takmarkaðu netnotkun starfsmanna
  • Mældu netnotkun

Nú til dags er orðið mjög algengt að starfsmenn fyrirtækja noti Internetið til ýmissa hluta sem tengjast þeirra daglegu verkefnum, s.s. við upplýsingaöflun af ýmsu tagi. Að sama skapi eiga stjórnendur erfitt um vik með að fylgjast með Internetumferð innan fyrirtækisins og þar með notkun sem ekki er hægt að tengja við daglega starfsemi. Röng notkun Internetsins getur því verið varasöm fyrir upplýsingaöryggi fyrirtækisins sem og haft neikvæð áhrif á vinnuframlag starfsmanna.

Ókeypis prufa 

Fyrirtækjum og stofnunum býðst að fá ókeypis úttekt á vefnotkun hjá sér. Úttektin felst í því að Þekking mælir almenna vefnotkun í viðkomandi fyrirtæki í 2 vikur. Í lok prufutímans er skilað skýrslu sem sýnir hvernig vefnotkun er háttað. Úttektin er án endurgjalds og er bundin við þá viðskiptavini sem eru með gagnasamband sitt í gegnum Þekkingu.

Stýring og eftirlit með vefumferð 

WebSense vefsían er uppbyggð með þeim hætti að hægt er að loka fyrir eða takmarka aðgang inn á vefsíður sem eru skilgreindar innan ákveðinna flokka vefsvæða. Flokkarnir innihalda lista af vefsíðum sem hægt er að stýra umferð inn á. Mismunandi flokka er hægt að loka fyrir að öllu leyti eða yfir skilgreindan tíma sólarhringsins. WebSense rekur lifandi gagnagrunn sem innheldur flokkun á í kringum 20 milljón vefsíðum í 90 mismunandi flokkum. Þannig geta fyrirtæki í samstarfi við sérfræðinga Þekkingar skilgreint hvaða flokka þau telja ekki falla innan ramma eðlilegrar vefumferðar hjá fyrirtækinu. Augljóst dæmi um flokk sem er lokað fyrir er klámfengið efni. Eðlilegt er að vefsíður sem innihalda klámfengið efni séu blokkaðar með öllu. WebSense er þó sveigjanlegt að því leyti að hægt er að takmarka umferð inn á ákveðna flokka við vissa tíma sólarhrings. Sem dæmi er hægt að setja reglu um að einungis sé hægt að skoða íþróttatengdar síður á milli klukkan 12.00 – 13.00 o.s.frv. Ef notandi fer inn á síðu sem flokkast sem „óæskileg“ fær hann viðvörun þess efnis eða lokun á vafri inn á viðkomandi síðu.   

Öflugt skýrslutól 

Jafnframt því að halda utan um vefumferð býður WebSense upp á öfluga skýrslugjöf sem gefur góða mynd af vefnotkun innan fyrirtækisins. M.a. er hægt að fá skýra mynd af netnotkun sem flokka má sem ótengda starfsemi viðkomandi fyrirtækis. Þessar upplýsingar má svo nota til að skilgreina enn betur þær takmarkanir sem fyrirtækið vill setja á vefumferð í vinnutíma.   

Bætt öryggi og framleiðni  

Vefsía Þekkingar getur fært fyrirtæki úr þeirri stöðu að hafa litla sem enga stjórn á netnotkun í vinnutíma yfir í nákvæma stýringu og yfirsýn á vefnotkun fyrirtækisins. Að auki er hægt að koma í veg fyrir að notendur fari inn á síður sem innihalda ýmsa óværu s.s. vírusa og njósnahugbúnað. Þar með er hægt að efla upplýsingaöryggi fyrirtækisins. Jafnframt því að styrkja upplýsingaöryggi má einnig gera ráð fyrir að stýring á vefnotkun bæti framleiðni innan fyrirtækisins þar sem oft vill verða að menn gleymi sér í vafri á Internetinu.

Hér má finna samningsskilmála fyrir Netvörn Þekkingar, smella hér.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf