Þekking gerir ráðstafanir v. hugsanlegs öskufalls
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur varla farið framhjá neinum sem býr
á Íslandi. Ekki er útilokað að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu
sem og á Akureyri. Í ljósi þessa hefur Þekking gripið til ráðstafana
til að bregðast við slíkum atburði þar sem fyrirtækið rekur vélasali
bæði á Akureyri og í Kópavogi.
nánar
Evrufesting fyrir Microsoft vörur framlengd
Samningar hafa nú náðst við höfuðstöðvar Microsoft um að áframhald
verði á evrugengi Microsoft fram til júníloka. Miðað verður við
evrugengið 150 fram til þess tíma.
nánar
Heppinn
vinur Þekkingar á Facebook
Nú hefur einn heppinn vinur Þekkingar
verið dreginn út og unnið fría vefsíðu og hýsingu í eitt ár.
Sigurvegarinn er Ragna Björnsdóttir á Akureyri.
Óskum henni til hamingju með vinninginn. Vinum Þekkingar á Facebook
hefur fjölgað ört frá því að síðan var sett í loftið í mars og telja
þeir nú nálægt 200 manns.

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Hádegiskynning á C5 bókhaldskerfinu á Akureyri
Þekking
verður með hádegiskynningu á Microsoft Dynamics C5 bókhaldskerfinu á
Hótel KEA miðvikudaginn 5 maí. Um er að ræða stutta og
hnitmiðaða kynningu á helstu eiginleikum C5 bókhaldskerfisins og
þjónustu Þekkingar fyrir notendur kerfisins.
Hvetjum alla áhugasama til að mæta og þiggja hádegissnarl í
leiðinni. Hægt er að skrá sig á kynninguna með því
að smella
hér.
nánar
SCCM - Fullkomin lausn fyrir kerfisstjóra
Þekking
hefur að undanförnu unnið við innleiðingar og ráðgjöf fyrir System
Center Configuration Manager (SCCM) lausnina frá Microsoft. Kerfið
hefur verið uppsett hjá nokkrum af viðskiptavinum fyrirtækisins auk
þess sem innleiðing þess er til skoðunar hjá ýmsum viðskiptavinum.
nánar
Ráðgjöf við gerð handbóka
Ráðgjafar
Þekkingar hafa aðstoðað fjölda viðskiptavina við gerð handbóka fyrir
innri starfsemi.
Tilgangurinn með handbókum er að tryggja að upplýsingar sem
nauðsynlegar eru fyrirtækinu séu skjalfestar og einskorðist ekki við
einstaka starfsmenn eða rekstraraðila. Einnig til að tryggja aðgengi
að réttum upplýsingum og að auðvelda alla þjálfun nýs starfsfólks.
Handbækur eru settar upp á þann hátt að þær séu einfaldar í notkun
og gefi jafnframt gott yfirlit yfir það efni sem þær
geyma.
Þekking hefur á undanförnum misserum þróað útfærslur
fyrir nokkrar tegundir handbóka og veitt ráðgjöf við gerð þeirra.
Þetta eru handbækur sem fjalla um rekstur upplýsingakerfa,
öryggismál, gæðaferli og starfsmannamál.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Mars 2010
|