Námskeið í vefsíðugerð í Joomla
Þekking hefur undanfarið boðið uppá vefsíðugerð í
Joomla vefumsjónarkerfinu. Nú bjóðum við
einnig uppá námskeið í notkun á Joomla vefumsjónarkerfinu og
vefsíðugerð. Joomla er eitt mest notaða vefumsjónarkerfi í heiminum
í dag enda er um fría lausn að ræða. Einn af stærstu kostunum við
Joomla er smíðaður hefur verið fjöldinn allur að sniðmátum og
viðbótareiningum sem notendur geta nýtt sér við uppsetningu á
heimasíðu í Joomla.
nánar
Microsoft
SharePoint - fullkomin lausn fyrir innri vefi
Þekking hefur á undanförnum mánuðum innleitt
Microsoft SharePoint hjá fjölda fyrirtækja og stofnana.
Helsti ávinningurinn af Microsoft SharePoint er að þar fæst hagkvæm
lausn til þess að byggja upp öflugan innri vef sem bætir
upplýsingastreymið til starfsmanna.
nánar
Ip
símkerfi Þekkingar
Vel yfir 200 notendur eru að nota ip símkerfislausn
frá Þekkingu. Fyrirtækjum býðst bæði að kaupa aðgang að ip símkerfi
í kerfisleigu sem og sérstaka uppsetningu fyrir sig. Sífellt
fleiri fyrirtæki og stofnanir eru farin að nýta sér þessa þjónustu.
nánar

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Aðalfundur VM í gegnum Netviewer fjarfundalausnina
Fyrir
stuttu var aðalfundur Félags Vélstjóra og
Málmtæknimanna haldinn á Grand Hótel í Reykjavík. Þar var
gripið til þeirrar nýbreytni að vera með beina útsendingu af
fundinum á netinu í gegnum Netviewer. Þannig gátu félagsmenn, sem
ekki áttu kost á því að mæta á fundinn, fylgst með honum á netinu.
Þó nokkur fjöldi félagsmanna nýtti sér þennan möguleika og ljóst er
að áfram mun verða boðið upp á slíkar útsendingar.
Fundurinn var einnig tekinn upp í heild sinni í gegnum Netviewer og
þannig geta félagsmenn sem misstu af fundinum horft á upptöku af
honum.
nánar
Þekking býður C5 bókhaldskerfið í kerfisleigu
Fyrirtæki
og stofnanir kjósa í auknum mæli að leigja
hugbúnað í stað þess að kaupa hann. Með þessu eru
rekstraraðilar oft að spara töluverða fjárfestingu í
vélbúnaði og hugbúnaði.
Með því að taka hugbúnað í kerfisleigu eru fyrirtæki ekki að binda
fjármagn í hugbúnaði og hafa því alltaf sveigjaleika til að t.d.
lækka kostnað með því að fækka notendum í stað þess að sitja uppi
með fjárfestingu sem þau eru ekki að fullnýta.
nánar
Þekking innleiðir Microsoft SharePoint hjá IKEA á Íslandi
Sérfræðingar
Þekkingar aðstoðuð nýverið IKEA á Íslandi við innleiðingu á innri
vef fyrir starfsemina. Verkefnið fólst í því að setja upp öfluga
innri vefs lausn sem byggð var á Foundation útgáfunni af Microsoft
SharePoint.
Innleiðingin gekk hratt og vel fyrir sig og í dag hafa allir
starfsmenn aðgang fréttaveitu, tilkynningum, starfsmannalistum,
upplýsingum um nýjar vörur og auglýsingar, vaktaskipulagi og
sömuleiðis var útbúin sérstök síða fyrir starfsmannafélagið.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna.
Apríl
2011
|