Rafrænt fréttabréf | Ritstjóri Auðunn Stefánsson | www.thekking.is | thekking@thekking.is | Sími 460 3100

Opnunartími á milli jóla og nýárs.

Þekking mun nú sem fyrr standa vaktina með viðskiptavinum um jól og áramót.

Þjónustuver Þekkingar verður opið sem hér segir:

24 des: Opið kl. 8-12.

25-26 des er lokað.

28 – 30 des er hefðbundinn opnunartími

31 des: Opið 8-12.

1 jan er lokað.  

Fyrir utan opnunartíma geta viðskiptavinir hringt í bakvaktarsíma Þekkingar í neyðartilfellum. Þeir viðskiptavinir sem eru ekki með aðgang/símanúmer í bakvakt Þekkingar geta sent fyrirspurn á sala@thekking.is ef þeir vilja kaupa slíka þjónustu um hátíðarnar.   

nánar



Tilboð: C5 fjárhagskerfið og Hp tölva

Þekking býður frábært tilboð á C5 fjárhagskerfinu og tölvu frá HP í einum pakka.   Tvennskonar tilboð eru í boði. Annars vegar er um að ræða C5 light og Hp turntölvu og hins vegar C5 light og Hp fartölva. Kynntu þér málið með því að smella á "nánar" hér að neðan.  

nánar

 

Þekking hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu.


Þekking hf. fær ISO27001 vottun

Þekking hf. hefur staðist vottun samkvæmt staðlinum ISO 27001, stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Nú á haustmánuðum 2009 fór fram úttekt á stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá Þekkingu og skemmst er frá því að segja að starfsemi Þekkingar stóðst þá úttekt.

Við höfum í nokkurn tíma byggt upp og sett okkur markvissa stefnu í upplýsingaöryggismálum og höfum unnið samkvæmt viðmiðum ISO 27001 staðalsins, segir Stefán Jóhannesson framkvæmdastjóri Þekkingar.  

 

 

 

nánar

Lotus Notes - póstur í símann

Þekking býður bæði sölu og ráðgjöf í tengslum við Lotus Notes. Mörg fyrirtæki eru með uppsettan Domino netþjón hjá sér og nota svo lausnir frá þriðja aðila til að nálgast tölvupóst í síma. Við hvetjum fyrirtæki til að kynna sér Notes Traveler lausnina, en hún fylgir FRÍTT með Domino Server.

IBM® Lotus Notes® Traveler hugbúnaðurinn veitir auðvelt aðgengi að tölvupósti (með viðhengjum), dagatali, tengiliðalista, verkefnalista ofl. fyrir Lotus Notes símanotendur. Lausnin er afar hentug fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem vilja að starfsmenn hafi aðgengi að upplýsingum hvar og hvenær sem er í gegnum símtæki sín.  

nánar

C5 fjárhagskerfið - Ný útgáfa á leiðinni

Góð þátttaka var á kynningu Þekkingar á Microsoft Dynamics C5 fjárhagskerfinu.

Kynningin var haldin í húsnæði Microsoft á Íslandi að Engjateigi 7. Ný útgáfa mun koma formlega á markað í janúar 2010, en áætlanir Microsoft gera ráð fyrir nýrri útgáfu árlega til ársins 2017.  

nánar

Þekking mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella hérna


Desember 2009