Opnunartími á milli jóla og nýárs.
Þekking mun nú sem fyrr standa vaktina með viðskiptavinum um jól og
áramót.
Þjónustuver Þekkingar verður opið sem hér segir:
24 des: Opið kl. 8-12.
25-26 des er lokað.
27 – 30 des er hefðbundinn opnunartími
31 des: Opið 8-12.
1 jan er lokað.
Fyrir utan opnunartíma geta viðskiptavinir hringt í bakvaktarsíma
Þekkingar í neyðartilfellum. Þeir viðskiptavinir sem eru ekki með
aðgang/símanúmer í bakvakt Þekkingar geta sent fyrirspurn á
sala@thekking.is ef þeir vilja
kaupa slíka þjónustu um hátíðarnar.
nánar
Nýir
starfsmenn hjá Þekkingu
Nokkrir nýir starfsmenn hafa komið til starfa hjá
Þekkingu á síðustu misserum.
nánar

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Þekking með vottaða Microsoft leyfisráðgjafa
Þekking
hefur síðustu árin verið er í hópi stærri endursöluaðila að
Microsoft leyfum og samningum á Íslandi. Fjöldi fyrirtækja,
ríkisstofnana og sveitarfélaga hafa valið Þekkingu sem
endursöluaðila og ráðgjafa leyfisleiðum fyrir Microsoft hugbúnað.
Nýverið, að undangengnu prófi, fengu 3 starfsmenn af sölusviði
Þekkingar s.k. MCP gráðu á sviði Microsoft leyfisráðgjafar ( Volume
Licensing Specialist). Þar með hefur fyrirtækið yfir að ráða
vottuðum leyfissérfræðingum af Microsoft.
nánar
Þekking fær endurnýjun á ISO 27001 vottun
Fyrir
rúmu ári síðan fékk Þekking vottun samkvæmt staðlinum ISO 27001,
stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Þau fyrirtæki sem hljóta þessa vottun
þurfa engu að síður fara í gegnum úttekt á hverju ári til að sýna
fram á að þau uppfylli þær kröfur um verklag sem staðallinn segir
til um.
Núna í nóvember fór þessi árlega úttekt fram. Hún fólst í því að
sérfræðingur á sviði ISO 27001 kom í heimsókn til Þekkingar og
framkvæmdi úttektina sem m.a. fólst í viðtölum við starfsmenn og
vettvangsskoðunum bæði í Kópavogi og á Akureyri. Skemmst er frá því
að segja að starfsemi Þekkingar stóðst úttektina með sóma.
nánar
Sendu okkur verkbeiðni í gegnum vefinn!
Ef
viðskiptavinir eru ekki með aðgang að þjónustuveri Þekkingar viljum
við hvetja þá sérstaklega til að senda okkur verkbeiðni í gegnum
vefinn frekar en að hringja beint í sinn tæknimann hjá Þekkingu.
Það eru margir kostir sem fylgja því að senda inn tilbúna verkbeiðni
til úrvinnslu.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Desember
2010
|