Kynning á fjarfundalausn
Þekking mun verða með opna kynningu á Netviewer
fjarfundalausninni kl. 11.00, miðvikudaginn þ.
10 mars nk. Kynningin fer fram í gegnum fjarfundalausnina sjálfa
þannig að gestir þurfa ekki að hreyfa sig úr stað heldur geta fylgst
með kynningunni frá sinni tölvu. Áhugasamir geta skráð sig á
kynninguna með því að senda póst á
sala@thekking.is.
C5
bókhaldskerfið á frábæru tilboðsverði
Nú er hægt að kaupa Light útgáfu C5
bókhaldskerfisins á frábæru tilboðsverði. Tilboðið hljóðar uppá
29.900,- kr. m. vsk. Tilboð þetta gildir meðan birgðr endast. Light
útgáfan hentar sérstaklega vel fyrir smærri fyrirtæki en notendum C5
á Íslandi fer ört fjölgandi. Nánari upplýsingar má fá
með því að senda fyrirspurn á
sala@thekking.is.
Office
2010 á leiðinni
Microsoft hefur opnað fyrir niðurhal á reynsluútgáfu
af Office 2010 á netinu. Viðskiptavinir sem eru með leyfissamninga
fyrir sín Microsoft leyfi ættu að geta nálgast útgáfuna á
leyfissíðum sínum núna í lok mars. Áætlað er að Office 2010 komi út
á almennum markaði í byrjun sumars. Hægt er að fræðast nánar um
Office 2010 og sækja Beta útgáfuna með því að smella á "nánar".
nánar

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Minni pappírsnotkun - Pcounter prentumsjónarkerfið
Þekking
hefur gert endursölusamning fyrir Pcounter
prentumsjónarkerfið á Íslandi. Pcounter er heildar
prentstýringarlausn.
Lausnin stýrir prentun innan fyrirtækja og stofnana, dregur úr
óþarfa prentun, eykur öryggi auk þess að bjóða upp á möguleika á
prentkvóta og kaupum á prentinneign. Lausnin nýtist öllum þeim sem
vilja draga úr prentun eða ná betri stjórn og yfirsýn yfir
prentkostnað fyrirtækis eða stofnunar.
Pcounter er ekki háð einstökum stýrikerfum og getur stýrt
prentverkum frá bæði PC, Mac og Unix vélum.
nánar
Fjör á Öskudaginn
Árlega
leggur mikill fjöldi barna leið sína í Þekkingu á Akureyri á
Öskudaginn, enda mikil hefð fyrir Öskudeginum á Akureyri.
Mikið er sungið og tekið er vel á móti þessum skemmtilegu gestum.
Hér má sjá 3 ungar stúlkur sem sungu fyrir starfsmenn við góðar
undirtektir.
Með stúlkunum stendur Ragnheiður Sigurðardóttir, ráðgjafi hjá
Þekkingu. Nú verða menn bara að giska á í gervi hvers Ragnheiður er
:-).
nánar
Á leið út í heim með Iceland Express
Þekking
tók þátt í „Best of...“ ráðstefnu Microsoft sem haldin var á Hilton
Nordica hótel dagana 26-27 janúar sl.
Fjöldi gesta heimsótti bás Þekkingar til að spjalla við starfsmenn
og kynna sér lausnir fyrirtækisins. Af þessu tilefni var Þekking með
smá happadrætti fyrir gesti í samstarfi við Iceland Express. Í boði
var ferð til áfangastaðar Iceland Express, að eigin vali, innan
Evrópu.
Sá sem hreppti ferðina var Magnús Hallbjörnsson, forstöðumaður
upplýsingatæknimála hjá Reykjanesbæ. Óskum við honum innilega til
hamingju og góðrar ferðar.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Febrúar 2010
|