Áframhald á gengisfestingu á Microsoft vörum
Viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning
munu verða gerð á evrugenginu 145 krónum fram til 31. mars. Sérstakt
Microsoft-gengi hefur verið notað hér á landi í rúmt ár en það var
innleitt í byrjun desember 2008 til að bregðast við algjöru frosti á
hugbúnaðarmarkaðnum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Microsoft á Íslandi.
nánar
Þekking
býður uppá notendanámskeið fyrir Win 7 stýrikerfið
Þekking býður fyrirtækjum og stofnunum uppá stutt og
hnitmiðuð örnámskeið á Win 7 stýrikerfið. Námskeiðið hentar
sérstaklega vel fyrir nýja notendur í Win 7.
Ráðgjafi Þekkingar mætir á viðkomandi vinnustað og heldur 1 klst
örnámskeið fyrir starfsmenn. Markmið námskeiðsins er að flýta fyrir
aðlögun starfsmanna að nýju umhverfi. Nánari upplýsingar, verð og
fyrirkomulag, má fá
með því að senda fyrirspurn á
sala@thekking.is.
Viltu
vinna flugferð með Iceland Express?
Þeir sem heimsækja kynningarbás Þekkingar á "Best
of..." ráðstefnu Microsoft og bóka kynningu hjá Þekkingu geta unnið
ferð með Iceland Express til áfangastaðar í Evrópu að eigin vali.
Áskrifendum á póstlista Þekkingar gefst sömuleiðis tækifæri til að
komast í pottinn með því að bóka kynningu fyrir lok janúar. Nánari
upplýsingar um kynningar sem eru í boði má fá með því að senda
fyrirspurn á sala@thekking.is.

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Þekking gerir samstarfssamning við Netviewer AG
Þekking
hefur gert samning við þýska fyrirtækið Netviewer AG um umboð fyrir
samnefndum fjarfundahugbúnaði frá fyrirtækinu.
Við teljum að þessi lausn henti vel fyrir
íslenskan markaði enda er hún mjög
samkeppnishæf hvað varðar verð og gæði, segir Auðunn Stefánsson,
sölu- og markaðsstjóri Þekkingar.
Enginn stofnkostnaður er í hugbúnaði heldur greiða fyrirtæki hóflegt
mánaðargjald í samræmi við notkun hverju sinni. Auðunn segir að
lausnin henti sérstaklega vel í því rekstrarumhverfi sem er ríkjandi
á Íslandi í dag, því hún sparar tvímælalaust
verulegan kostnað og tíma í kringum
ferðir starfsmanna á fundi.
nánar
Best of Tech-Ed og Convergence ráðstefna Microsoft
Þekking
verður með kynningarbás á "Best of Tech-ED & Convergence" ráðstefnu
Microsoft sem haldin verður dagana 26-27 janúar nk. Jafnframt mun
Þekking eiga fulltrúa í hópi fyrirlesara en Ragnheiður
Sigurðardóttir, ráðgjafi frá Þekkingu, mun flytja erindi um nýja
útgáfu af C5 fjárhagskerfinu.
Ráðstefnunni er skipt niður í fjórar meginbrautir sem eru sniðnar að
mismunandi þörfum upplýsingatæknifólks og stjórnenda í
atvinnulífinu. Tæknileg dýpt fyrirlestra er mismunandi, allt frá
almennu yfirliti sem hentar vel stjórnendum sem vilja kynna sér
helstu möguleika viðkomandi umfjöllunarefnis upp í mjög sérhæfða
fyrirlestra sem ætlaðir eru sérfræðingum á viðkomandi sviði.
Frítt er á ráðstefnuna.
nánar
Þekking á því sem skiptir máli - Sparnaður!
Sparnaður
er flestum rekstraraðilum hugleikinn þessa
dagana og við hjá Þekkingu höfum í okkar vopnabúri ýmsar leiðir til
lækkunar á kostnaði fyrirtækja.
Við viljum
sérstaklega vekja athygli þína á fjarfundalausnum, leigu á
ip-símkerfi, hýsingu kerfa og skjalakerfis lausnum Þekkingar. Ef þú sérð
tækifæri til sparnaðar fyrir þitt fyrirtæki með einhverjum af
ofangreindum lausnum skaltu hafa samband og
saman getum við náð árangri!
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Janúar 2010
|