Fréttabréf Þekkingar

 
Rafrænt fréttabréf | Ritstjóri Auðunn Stefánsson | www.thekking.is | thekking@thekking.is | Sími 460 3100

Evrufesting Microsoft að renna út

Festing Microsoft á gengi evrunnar fyrir Microsoft vörur er að renna út, en hægt verður að kaupa Microsoft vörur á evrugenginu 150 til loka júní mánaðar. Eftir þann tíma mun gildandi gengi á hverjum tíma gilda. Af því tilefni bendum við fyrirtækjum á að vert sé að huga að því að panta viðbótarleyfi eða ný leyfi áður en evrufesting fellur úr gildi. Nánari upplýsingar veitir sölusvið Þekkingar, sala@thekking.is.     


Netviwever fjarfundalausnin fremst meðal jafningja

Fyrirtækið TopTenReviews, sem sérhæfir sig í samanburðarkönnunum á hugbúnaðarlausnum, valdi nýverið Netviewer fjarfundalausnina í fyrsta sæti hvað varðar gæði sambærilegra lausna. Þekking er umboðsaðili fyrir Netviewer á Íslandi og hýsir lausnina í vélasal sínum. Hægt er að skoða niðurstöður könnuninar með því að smella á nánar hér að neðan. Upplýsingar um verð og eiginleika veitir sölusvið Þekkingar, sala@thekking.is.         

nánar 


Avast vírusvörnin komin með yfir 100 milljónir notenda

Þekking hefur til fjölda ára selt og þjónustað avast! vírusvörnina frá Alwil software. Notendum avast hefur fjölgað gríðarlega og eru nú komnir yfir 100 milljónir á heimsvísu. Vírusvörnin hefur einnig hlotið fjölda viðurkenninga og kemur vel út í samanburði við aðrar lausnir á markaðnum. Nánari upplýsingar veitir sölusvið Þekkingar, sala@thekking.is

 

Þekking hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu.


Hafnarfjarðarbær semur við Þekkingu hf. um afritun gagna 

Hafnarfjarðarbær hefur í framhaldi af verð- og gæðakönnun samið við Þekkingu hf. um afritunarþjónustu tölvugagna. Samningurinn felur í sér að Þekking mun annast afritun á helstu gagnagrunnum og kerfum bæjarins. Um er að ræða fjarafritun í gegnum gagnasamband.

Sigurður Barði Jóhannsson, deildarstjóri tölvudeildar Hafnarfjarðarbæjar, segir að bærinn hafi ákveðið að leita eftir þessari þjónustu til þess að tryggja enn frekar öryggi gagna, en Þekking notar afritunarlausnina Tivoli Storage Manager frá IBM sem er einn fullkomnasti afritunarhugbúnaðurinn á markaðnum.  Þekking hf. varð fyrir valinu á grundvelli verðs og gæða.

nánar


Microsoft Office 2010 útgáfan komin á markað

Í maímánuði var fyrirtækjum sem hafa leyfissamning við Microsoft veittur aðgangur að nýjustu útgáfu Office hugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Við sama tækifæri gaf Microsoft út 2010 útgáfuna af SharePoint hópvinnukerfinu en saman eru þessar lausnir sérhannaðar til að auka framleiðni og hagkvæmni, m.a. með notkunarmöguleikum á Internetinu og í farsímum.

 nánar

Spáðu í leikina á HM í knattspyrnu

Senn fer í hönd mikil knattspyrnuveisla á HM í Suður Afríku. Af því tilefni ætlum við hjá Þekking að efna til smá samkeppni fyrir alla sem hafa áhuga. Keppnin er mjög einföld.

Einungis þarf að koma með spádóm um hvaða land muni standa upp sem sigurvegari á mótinu.

Í verðlaun er 10.000 kr. gjafabréf á góðum veitingastað. Ef það verða fleiri en einn þátttakandi sem giska á rétta landið mun verða dregið um hver hlýtur vinninginn.

Þeir sem vilja taka þátt mega senda okkur tölvupóst á netfangið hm2010@thekking.is með sinni spá um hver verði heimsmeistari í knattspyrnu árið 2010.

nánar


Þekking mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella hérna


Maí 2010