Kynning á WSS innranetslausn
Þekking mun verða með opna fjarkynningu á WSS
innranetslausninni kl. 11.00, miðvikudaginn þ.
21 apríl. nk. Kynningin fer fram í gegnum fjarfundalausn Þekkingar,
þannig að gestir þurfa ekki að hreyfa sig úr stað heldur geta fylgst
með kynningunni frá sinni tölvu. Áhugasamir geta skráð sig á
kynninguna með því að senda póst á
sala@thekking.is.
Microsoft
leyfissamningar
Nú er útrunnin gengisfesting sú sem hefur verið á
Microsoft hugbúnaði frá seinni hluta árs 2008. Núna síðast var gengi
evrunnar fest í 145 krónum. Ekki hefur fengist staðfesting hjá
Microsoft á því hvort framhald verði á gengisfestingunni en vonir
standa til að það muni skýrast núna í apríl mánuði. Nánari upplýsingar má fá
með því að senda fyrirspurn á
sala@thekking.is.
Þekking á
Facebook
Þekking hefur sett í loftið upplýsingasíðu á
Facebook. Þetta er einn þáttur í því að tryggja enn frekar
sjáanleika fyrirtækisins. Hvetjum þig til að skrá þig sem vin
Þekkingar á Facebook. Fram til
15. apríl ætlum við að safna vinum okkar í pott og draga út fría
vefsíðu + vefhýsingu í 1 ár. Verður þú í pottinum?
nánar

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
WSS - Fullkomið og ókeypis umsjónartól fyrir innri
vefi
Fjöldi
fyrirtækja og stofnana eiga og reka netþjóna með Windows
stýrikerfinu. Það sem menn gera sér oft ekki
grein fyrir er að með Win 2003 og Win 2008 stýrikerfishugbúnaðinum
fylgir viðbót sem heitir Windows SharePoint Services (WSS).
Hér er um að ræða fullkomið vefumsjónartól sem hægt
er að nota til að setja upp innri upplýsingavef fyrirtækisins.
Ráðgjafar Þekkingar hafa undanfarið aðstoðað fjölda viðskiptavina
við að setja upp innri vefi í WSS með góðum árangri.
nánar
Þróunarsetur Hólmavíkur prófar fjarfundalausn
Þekkingar
Áhugi
á Netviewer fjarfundalausninni fer vaxandi og notendum fer ört
fjölgandi. Þekkingu barst nýlega skemmtileg frétt af notkun
Netviewer hjá Þróunarsetri Hólmavíkur.
Þróunarsetrið prófaði Netviewer á fjölmennum fjarfundi með
samstarfsaðilum vítt og breytt um landið.
nánar
Þekking með lið í "Karlar og krabbamein" söfnunni
Starfsmenn
hjá Þekkingu voru duglegir við að safna
"mottum" í mars mánuði, sumir meira en aðrir.
Hér voru starfsmenn að taka þátt í átaki
Krabbameinsfélags Íslands sem fólst í því að karlar söfunuðu
mottum í marsmánuði. Um leið söfnuðu menn áheitum til styrktar
forvörnum og ráðgjöf við þá sem greinast með krabbamein.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Mars 2010
|