10 ára afmælistilboð til áramóta
Líkt og allt þetta ár verða áfram í boði sérstök
tilboð í tilefni af 10unda starfsári Þekkingar. Meðal þeirra vara og
þjónustu sem verða á sérstökum kjörum til áramóta eru: 3 ár á verði
2ja fyrir avast vírusvörnina, ókeypis vinnufundur með ráðgjöfum í
skjalastjórnun, ókeypis 3 mánuðir í ip símkerfisleigu og frír
Sharpoint vinnufundur.
nánar
Þekking
tekur í notkun nýja heimasíðu
Þekking hefur sett í loftið nýja og glæsilega
heimasíðu. Vinna við hönnun síðunnar hófst á sumarmánuðum og hún var
formlega sett í loftið í kringum afmæli Þekkingar núna í byrjun
nóvember. Markmið með hönnun síðunnar var að gera upplýsingar um
þjónustu og vörur Þekkingar sem aðgengilegastar fyrir gesti
heimasíðunnar. Smelltu á nánar hér að neðan til að skoða nýja
heimasíðu Þekkingar
nánar
Stefán
Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar, endurkjörinn í stjórn SUT
Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar hf., var endurkjörinn
í stjórn Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, SUT, á aðalfundi
samtakanna nú í október.
nánar

Þekking
hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður
fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu,
internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum,
ráðgjöf og kennslu. |
Þekking hf. fagnar 10 ára starfsafmæli
Þann
1. nóvember sl. átti Þekking hf. 10 ára starfsafmæli. Fyrirtækið var
stofnað þann 1. nóvember 1999 af KEA og Íslenska hugbúnaðarsjóðnum,
með aðsetur á Akureyri, en fyrirtækið var stofnað upp úr tölvudeild
KEA sem var sett á fót árið 1974.
Það má því segja að Þekking eigi sér því langa sögu miðað við
fyrirtæki á þessu sviði.
nánar
Þekking kynnir fjarfundaþjónustu
Þekking
hf. býður frábærar lausnir fyrir fyrirtæki og
stofnanir sem vilja draga úr kostnaði vegna fundahalda. Oft
liggur talsverður kostnaður í því að koma starfsmönnum á einn og
sama staðinn til fundahalda, bæði vegna ferða- og uppihalds og
einnig vegna tapaðra vinnustunda í ferðalög.
Með öflugu fjarfundakerfi má draga talsvert úr kostnaði vegna
fundahalda auk þess sem hægt er að boða til kynninga og funda með
stuttum fyrirvara innan fyrirtækja sem dreifð eru á fleiri en einn
stað.
nánar
Lotus Notes þjónusta Þekkingar
Þekking
hf. býður öfluga þjónustu á hagstæðum kjörum í tenglum við Lotus
Notes. Ráðgjafar og forritarar Þekkingar hf. hafa yfir 10 ára
reynslu í Lotus notes og tekið að sér fjölbreytt verkefni á þeim
tíma.
Á meðal viðskiptavina Þekkingar hf. í Lotus Notes er fjöldinn allur
af fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum.
Þjónustuframboð Þekkingar er vel skilgreint og viðskiptavinir vita
að hverju þeir ganga hverju sinni; áreiðanlegri þjónustu, skjótum
viðbragðstíma og fyrirsjáanlegum kostnaði.
nánar
Þekking
mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar
eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella
hérna
Nóvember
2009
|