Fréttabréf Þekkingar

 
Rafrænt fréttabréf | Ritstjóri Auðunn Stefánsson | www.thekking.is | thekking@thekking.is | Sími 460 3100

5 góðar ástæður til að nota Office 2010

Í maí mánuði var fyrirtækjum sem hafa leyfissamning við Microsoft veittur aðgangur að nýjustu útgáfu Office hugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Office 2010 bíður uppá margvíslegar skemmtilegar nýjungar sem vert er að kynna sér. Hér eru 5 góðar ástæður fyrir vali á Office 2010. Smelltu á nánar hér að neðan til að skoða þær.   

nánar 


Vantar þig vefsíðu?

Þekking getur veitt viðskiptavinum sínum aðstoð varðandi hönnun og uppsetningu á vefsvæðum. Sérfræðingar Þekkingar þróa í dag lausnir bæði fyrir innri- og ytri vefi. Þekking þjónustar í dag ýmis mismunandi vefumsjónarkerfi og felst þjónusta fyrirtækisins í ráðgjöf og þarfagreiningu varðandi uppsetningu og skipulag vefsvæðisins.     

nánar 


Heppinn vinur Þekkingar á Facebook

Töluverður fjöldi tók þátt í HM leik Þekkingar í sumar. Þar var reynt á getspeki þátttakanda um tilvonandi heimsmeistar í knattspyrnu. Þrír þáttakendur giskuðu á rétt lið sem var Spánn. Það var síðan Sigtryggur Rúnarsson á Akureyri sem var dreginn út og hlaut að launum máltíð á veitingastaðnum Strikinu.

 

Þekking hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Þekking býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margskonar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu.


Ríkiskaup velur Þekkingu hf.

Undanfarin 2 ár hefur Þekking verið söluaðili í rammasamningi ríkiskaupa fyrir rekstrar og hýsingarþjónustu tölvukerfa.

Nú í sumar fór fram nýtt útboð hjá Ríkiskaupum fyrir þessa tilteknu þjónustu og varð Þekking aftur fyrir valinu. Þekking er því viðurkenndur söluaðili fyrir opinberar stofnanir og fyrirtæki í öllum þjónustuflokkum sem voru boðnir út.

nánar


Microsoft Dynamics C5 í kerfisleigu hjá Þekkingu

Þekking hf. er sölu- og þjónustuaðili fyrir C5 bókhaldskerfið frá Microsoft. Nú í haustbyrjun mun Þekking bjóða C5 í kerfisleigu. Í þessu felst að nýir notendur að kerfinu geta leigt kerfið og hýst hjá Þekkingu.

Um er að ræða sérstakt leyfisfyrirkomulag sem Microsoft bíður í gegnum viðurkennda samstarfsaðila eins og Þekkingu. Þessi leyfisleið er tvímælalaust góður valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja lágmarka fjárbindingu í hugbúnaðarleyfum og tengdum búnaði.

 

 

 

 

 nánar

Einfaldaðu þér lífið með Microsoft SCCM

Þekking hf. sér um rekstur og viðhald á tölvukerfum fjölda fyrirtækja og stofnana. Umsýsla stórra og flókinna tölvukerfa getur oft verið flókin og vandasamt fyrir kerfisstjóra að hafa yfirsýn yfir þann búnað sem fylgjast þarf með. Í starfi sínu reyna því kerfisstjórar Þekkingar að nýta sér þær lausnir sem einfaldað geta starf þeirra.

Á meðal þeirra lausna sem nýttar eru við umsjón tölvukerfa hjá viðskiptavinum Þekkingar er Microsoft System Center Configuration Manager (SCCM).    

nánar


Þekking mun ekki láta netföng áskrifenda í hendur þriðja aðila. Ef þú óskar eftir að afskrá netfang þitt af póstlistanum þá skaltu smella hérna


September 2010