Teams símkerfi

Þekking býður fyrirtækjum upp á þann möguleika að vera með símkerfi fyrirtækisins inni í Microsoft Teams. Einföld lausn í uppsetning, notkun og er hagkvæm í rekstri. Lausnin gerir fyrirtækjum kleift að laga sig mjög hratt að breyttum aðstæðum og halda uppi góðri þjónustu.

Senda fyrirspurn

Hvernig virkar Teams símkerfi?

Þegar hringt er úr Teams fara símtölin í gegnum almenna símkerfið í stað þess að samskiptin fari í gegnum gagnaflutningskerfi. Notendur geta því hringt hvort sem er í farsíma eða landlínu, innanlands sem og erlendis. Með því fæst aukið öryggi í samskiptum þar sem símtöl fara ekki út fyrir landamæri Íslands.

Notendavænt viðmót


Símtölin beint úr notendavænu umhverfi Teams sem starfsfólk er vant að nota. Notendur eru því fljótir að tileinka sér notkun.

Einfalt í uppsetningu


Lausnin er einföld og fljótleg í uppsetningu. Öll almenn virkni er í grunnuppsetningu Teams.

Hagkvæmur rerkstur


Fyrirtækin geta séð alveg um rekstur lausnarinna eða fengið Þekkingu til þess. Uppfærslur eru miðlægar og því ekkert viðhald.

Fullkomið þjónustuver


Mögulegt er að bæta við þjónustuveri og skiptiborði fyrir allar stærðir fyrirtækja.

Eftir að símkerfislausnin hefur verið virkjuð í Teams, birtist símtólstákn í viðmótinu. Notandinn getur þá hringt beint úr appinu. IP símtæki og símstöðvaþjónar eru þar með óþarfi. Þó er mögulegt að nýta IP símtæki þar sem það hentar.

Þjónustver og skiptiborð í Teams

Góður kostur fyrir allar stærðir fyrirtækja og er alveg samþætt Teams símkerfinu. Hugbúnaðurinn tengist Teams símkerfinu og opnar á marga spennandi möguleika til að gera flæði símtala árangursríkara fyrir enn hærra þjónustustigi fyrir viðskiptavini.


  • Engan sérstakan hugbúnað þarf á tölvur starfsfólks í þjónustuveri. Umhverfið er þar að auki einfalt í uppsetningu.
  • Í einföldu grafísku viðmóti er hægt að stilla flæði símtala, svarraðir, opnunartíma og talskilaboð.
  • Einstaklega skalanleg lausn eftir þörfum hvers og eins. Hægt að vera með eitt eða fleiri skiptiborð.
  • Einfalt er fyrir starfsfólk að bæta sér í eða taka úr svarröð.
  • Lausnin heldur utan um ítarlegar upplýsingar og því hægt að fá góða tölfræði yfir svörun símtala. Einnig mögulegt að fá enn ýtarlegri upplýaingar í gegnum PowerBI.


Það er einfalt að vera með símkerfið í Teams

1. Hafðu samband

2. Við skoðum með þér

3. Innleiðing

4. Þú nýtur símkerfisins í Teams

Senda fyrirspurn
Share by: