FOTOWARE
Myndræn gögn eru í flestum tilfellum á víð og dreif um fyrirtæki og stofnanir með tilheyrandi kostnaði. Fotoware er lausn sem auðveldar meðal annars vistun, skráningu, miðlun og aðgangsstýringu á myndrænum gögnum
á einum miðlægum stað í góðu skipulagi.
Síðan
1994
Yfir
600.000
notendur
Yfir
4.000
viðskiptavinir
Horfðu á myndbandið og sjáðu hvernig Fotoware getur gagnast þínu fyrirtæki.
Notendur geta fundið, deilt og endurnýtt myndir, myndbönd og skjöl á árangursríkan hátt með þeim eiginleika að geta sett viðeigandi lýsigögn á skrár sem eru settar inn.
FLÆÐI OG SKIPULAG SKRÁA SEM HENTA ÞÉR
Fotoware getur verið á því formi sem hentar þér. Sem skýjalausn (SaaS), á eigin netþjóni eða blanda af hvoru. Þannig nærðu að byggja upp eigin myndabanka sem fellur alveg að þínum þörfum.
Með API viðbótinni getur þú innleitt myndabankann í nær allar aðrar lausnir – einn miðlægur myndabanki fyrir aðgengi og afhendingu skráa.
VEFLAUSN FYRIR HEILDAR YFIRSÝN
Vefviðmótið er það sem flestir nota við innsetningu, skráningu, uppflettingu og deilingu á myndrænum gögnum. Þar er hægt að setja upp ýmsar flokkanir og flæði efnis í gegnum efnisorðaskráningu (metadata) ásamt því að vera með albúm fyrir mismunandi tilgang.
Notendur í vefviðmóti hafa einnig möguleika að nálgast myndefni í gegnum Word og Power Point ásamt Adobe Suite.
Aðgangsstýring er mjög góð til að stjórna hver hefur aðgang að hvaða safni og hvað hver má gera í hverju safni.
MEIRA FRELSI MEÐ FOTOWARE Í SNJALLTÆKJUM
Fotoware er með fullkomið app fyrir snjalltæki sem keyra á Android eða iOS stýrikerfum. Fotoware smáforritið er eitt það fyrsta fyrir DAM lausnir þar sem allir eiginleikar frá veflausninni eru til staðar. Eiginleikar eins og að hlaða inn og skrá lýsigögn á skrár, finna efni og deila, nota aðgerðir og margt fleira.
Einstaklega þægilegt viðmót sem eykur notagildi lausnarinnar umtalsvert fyrir starfsfólk sem er mikið á ferðinni.
TIL STAÐAR ÞAR SEM ÞÚ ÞARFT MYNDEFNI
Fotoware Plugin gerir notendum kleift að nálgast myndefni í Microsoft Word, Microsoft Power Point, Adobe Photoshop, Adobe Illustrator og Adobe Indesign á einfaldan hátt.
Algjör nauðsyn svo ekki þurfi að fara á marga staði til að finna rétt myndefni í skjalið sem er verið að vinna með.
FJÖLMARGIR EIGINLEIKAR, MEIRI STJÓRNUN OG SKILVIRKARA VINNUFLÆÐI
Fotoware býður upp á fjölmarga eiginleika til að samþykkja myndefni, passa að lýsigögn séu til staðar, að myndefni sé GDPR samþykkt. Jafnframt myndbreyta um leið og efni er hlaðið niður, unnið saman með innsetningu leiðbeiningar (annontation) ofl.
Meðal innlendra notenda
Hér má sjá dæmi um fyrirtæki og stofnanir sem nota Fotoware til að halda utan um sín verðmætu stafrænu gögn.